Til baka
27 Sep 2023

Miðasala á jólatónleika Valdimars hafin!

Miðasala er hafin á jólatónleika Valdimars Guðmundssonar!

Stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson snýr aftur og heldur jólatónleika í Hofi laugardagskvöldið 16. desember ásamt fjölmennri hljómsveit, blástri og bakröddum. Þetta skiptið býður hann einnig velkominn sérstakan hátíðargest, hinn goðsagnakennda Pálma Gunnarsson.

Valdimar þarf vart að kynna en hann hefur verið einn þekktasti og dáðasti söngvari landsins undanfarinn áratug. Hljómsveit hans, Valdimar, hefur víða gert garðinn frægan og þar að auki státar hann af glæsilegum sólóferli. Hljómsveitarstjóri er hinn geðþekki Ómar Guðjónsson.

Búast má við hugljúfum en einnig kraftmiklum jólatónleikum, sem enginn ætti að missa af.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link