Til baka
21 Mar 2011

Miðasala hafin á Hárið

Sumarið er 1968, staðurinn er Central Park í New York. 

Claud, saklaus sveitapiltur frá Oklahoma er á leið á herkvaðningaskrifstofuna til að ganga í herinn.  Fram undan er stríðið í Víetnam.  En á leið sinni í gegnum Central Park kynnst hann hippunum; Berger og fleirum úr Hár-genginu.  Vinahópurinn hefur ákveðið að berjast gegn stríði og óréttlæti í heiminum með söng, ást og gleði.

Hárið er fyrsti stóri rokksöngleikurinn og hefur að bera mörg af þekktustu söngleikjalögum allra tíma, þar á meðal; Að eilífu, Blikandi stjörnur, Lifi ljósið og titillag verksins; Hár!

Markmið hópsins er að brosa, gleðjast, og láta ljósið skína!

Í Silfurtunglinu eru margir af bestu söngvurum landsins, og muna þau þenja raddböndin fyrir áhorfendur.

Hægt er að kaupa miða í sæti eða lautina en sama miðaverð er á báða staðina.  Sætin eru umhverfis sviðið en ef þú pantar miða í lautina eru í þægindin í fyrirrúmi á teppum og púðum í nánd við leikarana og upplifir þannig hina sannkölluðu „Woodstock“ stemningu.

MAKE LOVE, NOT WAR

Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Leikmynd: R. Mekkín Ragnarsdóttir

Leikarar og söngvarar:Berger: Eyþór Ingi Gunnlaugsson Claud: Matthías Matthíasson Hud: Magni Ásgeirsson Sheila: Jana María Guðmundsdóttir Jeane: Erna Hrönn Ólafsdóttir Dianne: Ólöf Jara Skagfjörð Voffi: Pétur Örn Guðmundsson

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link