Til baka
14 Aug 2017

Myndlistasýningin 22 konur í Hofi

Þann 25. ágúst opnar sýning Írisar Auðar Jónsdóttur, 22 konur, í menningarhúsinu Hofi. Málverkaröðin samastendur af 22 portrait myndum af konum, en þær endurspegla kvenpersónur sem koma úr hugarheimi listamannsins. Íris fær sinn innblástur úr ólíkri tónlist sem mótar persónurnar sem verða til. Þetta er fyrsta einkasýning Írisar. Allar myndirnar eru unnar með akrýl á pappír.

Íris Auður Jónsdóttir fæddist á Akureyri 1981. Með menntaskólanum tók hún fjöldamörg námskeið hjá Myndlistaskólanum á Akureyri og kláraði fornámið þar 2001. Árið eftir flutti hún til Spánar og fór í nám í fatahönnun hjá IED í Madríd og útskrifaðist þaðan 2005. Íris lauk kennsluréttindanámi hjá Listaháskólanum og hefur síðan ásamt kennslu unnið sem sjálfstæður teiknari. Hún hefur myndskreytt tugi bóka fyrir námsgagnastofnun, teiknað fyrir einstaklinga, sýningar og söfn.

Þar má nefna hreindýrasýningu í Hardangervidda í Noregi, margmiðlunaratriði í Hvalasafninu og teikningar fyrir margmiðlunaratriði sem er við fornleifauppgröft í San Simon í Sloveníu.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link