Til baka
14 Feb 2020

Nám í sviðslistum í undirbúningi

Undirbúningur fyrir nýja námsbraut; kjörnámsbraut með áherslu á sviðslistir gengur vel en um samstarf Menntaskólans á Akureyri og Leikfélags Akureyrar er að ræða.

Vala Fannell, verkefnastjóri brautarinnar, segir gott að finna metnaðinn og viljann frá LA og MA. „Við höfum fundið fyrir töluverðum áhuga frá ungu fólki, námsráðgjöfum grunnskólanna og fólki allstaðar að af Norðurlandi,“ segir Vala sem segir brautina ekki einungis fyrir þá sem vilja verða leikarar. „Þessi braut er fyrir krakka sem eru í leiklist, dansi, tónlist, tækni eða hönnun en hafa einnig áhuga á leikhúsi. Eftir námið hafa nemendur fengið sterkan grunn til að mennta sig áfram í list sinni en eru einnig vel undirbúnir fyrir almennt háskólanám.“

Jón Már Héðinsson, skólameistari Menntaskólans, er spenntur fyrir nýju brautinni. „Okkur í MA fannst vanta námsframboð í sviðslistum og vildum auka úrval skapandi greina. Nemendur hafa kallað eftir þessu og þetta er spennandi verkefni.“

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link