Til baka
25 Aug 2023

Námskeið fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir prufur – Skráning hefst á mánudaginn

Ungmenna námskeið er glænýtt námskeið á vegum LLA sem ætlað er ungmennum sem vilja undirbúa sig fyrir prufur og inntökupróf!

Námskeiðið hefst 5. september og er ætlað þeim sem vilja undirbúa sig vel yfir prufur leikfélaga menntaskólanna. Farið verður yfir leiklistar-, söng- og dansprufur, bæði fyrir uppsetningar hjá menntaskólum sem og aðrar leiksýningar.

Tilvalið námskeið fyrir þá sem stefna á að fara í prufur fyrir uppsetningarnar menntaskólanna í ár og einnig ef hugurinn á stefnir á framhaldsnám í leiklist, söngleikjum, söng eða dansi í framtíðinni. Meðal annars verður farið í val á eintölum og lögum, hvernig skal undirbúa þau fyrir prufur, dansrútínur og aðferðir við að pikka þær upp. Þá verður svo kallað ‘mock audition’ þar sem verður hermt eftir prufum. Þá verður líka farið í hvernig vinnusmiðjuprufur virka.

Kennari verður Jónína Björt Gunnarsdóttir, menntuð leikkona og söngkona, en hún hefur leikið, sungið og dansað í Chicago og Vorið vaknar hjá Leikfélagi Akureyrar, auk fjölda annarra verkefna með hinum ýmsu hópum.

Námskeiðið hefst 5. september og lýkur 10. október.

Tímasetning: Þriðjudagar kl. 19:30-22:30

Námskeiðsgjöld: 56.000 kr. – hægt er að skipta í 5 greiðslur.

Skráning hefst mánudaginn 28. ágúst

Skráning fer fram á Sportabler.

 

Lágmarks fjölda skráninga þarf til að námskeið verði haldið.​

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link