Til baka
25 Feb 2021

Nemendur í leiklist kíktu á æfingu á Benedikt búálfi

Hátt í hundrað nemendur Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar hafa í vikunni fengið að líta inn á æfingar á Benedikt búálfi í Samkomuhúsinu.

María Pálsdóttir skólastjóri LLA segir heimsóknina dýrmæta fyrir nemendur leiklistarskólans.

„Það er lærdómsríkt fyrir þau að sjá hvernig æfingar fara fram í atvinnuleikhúsi og sjá hversu margir starfa í kringum eina sýningu í tengslum við lýsingu, búninga, leikmynd, sviðshreyfingar, gervi og þess háttar. Það verður svo spennandi fyrir þau að sjá sýninguna fullbúna en flest eru  þau staðráðin í að gera það,“ segir María. 

Söngleikurinn Benedikt búálfur verður frumsýndur í Samkomuhúsinu 6. mars. Miðasala er í fullum gangi hér.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link