Til baka
25 May 2023

Níu fjölbreyttir viðburðir fengu styrk frá VERÐANDI listsjóð

Veittir hafa verið styrkir úr listsjóðnum VERÐANDI fyrir árið 2023-2024. Það voru 16 umsóknir sem bárust sjóðnum og níu viðburðir sem fengu brautargengi. Viðburðirnir eru eins fjölbreyttir og þeir eru margir. Klassísk tónlist, jazzperlur, samtímadansverk, barnatónlistar- og danssmiðja, útgáfutónleikar þjóðlaga og popptónlistar, angurværir ástarsöngvar, raf – og óperutónlist munu laða að breiðan hóp gesta á nýju starfsári í húsinu.

„Það var sérstaklega skemmtilegt að sjá fjölbreytni umsóknanna, sjá metnað listafólksins og vilja til að nýta sér aðstöðuna hér í Hofi fyrir þeirra flottu og krefjandi viðburði. Styrkþegar starfsárs Menningarfélags Akureyrar 2023-2034 bjóða uppá forvitnilega, fjölbreytta og kröftuga viðburði sem munu laða gesti til sín allt frá 3 ára aldri. Við óskum þeim innilega til hamingju með styrkinn og hlökkum mikið til að taka á móti þeim og gestum þeirra í hús,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri VERÐANDI listsjóðs.

Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað:

Guðný Ósk Karlsdóttir: Leitin að regnboganum, dans- og tónlistarsmiðja fyrir börn við nýtt frumsamið efni.

Brynjólfur Brynjólfsson og Sigríður Hulda Arnardóttir: Úr tóngarðinum, útgáfutónleikar með frumsömdu efni.

Vigdís Þóra Másdóttir og Helga Margrét Clarke: Íslenskar Jazz perlur.

Gísli Rúnar Víðisson: Úr öllum áttum, klassískir tónar.

Yuliana Palacios: Hér á ég heima, frumsamið samtímadansverk.

Gísli Magnússon: Gímaldin flytur Hetfield píanó-próekt.

Rósa María Stefánsdóttir: Ástarsæla, gullperlur ástarsöngvanna.

Michael J. Clarke: Vortónleikar Hljómsveitar Akureyrar.

Rakel Björk Björnsdóttir: ÞAU taka Norðurland, útgáfutónleikar; frumsamin tónlist við texta norðlenskra skálda.

Það eru Akureyrarbær, Menningarfélagið Hof ásamt Menningarfélagi Akureyrar sem standa að baki listsjóðnum VERÐANDI. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof sem vettvang fyrir listsköpun sína og auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að koma þar fram. Allir viðburðir styrkþeganna verða sýnilegir á mak.is þar sem nálgast má nánari upplýsingar.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link