Til baka
27 Mar 2026

Norðlenskum ungmennum gefst kostur á að taka þátt í kvikmynda sumarbúðum í Svíþjóð

Ungmennum á Norðurlandi eystra býðst nú í sumar einstakt tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegum sumarbúðum í kvikmyndagerð, en búðirnar verða haldnar í Hälsingland í Svíþjóð í ágúst næstkomandi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar en Jenný Lára Arnórsdóttir, skólastjóri Leiklistaskóla Leikfélags Akureyrar, leiðir verkefnið fyrir hönd menningarfélagsins.

Um er að ræða átta daga vinnubúðir þar sem ungmenni frá Íslandi, Grænlandi og Svíþjóð koma saman til að læra undirstöðuatriði kvikmyndagerðar og vinna eigin stuttmyndir. Verkefnið er hluti af norrænu samstarfi sem nefnist Nordic Film Path og miðar að því að efla rödd ungs fólks í dreifbýli.

Skipuleggjendur verkefnisins voru staddir á Húsavík í vikunni, en kvikmyndagerðarfólk og kennarar frá löndunum þremur hafa verið á Akureyri þessa vikuna að móta verkefnið og miðla reynslu sinni. Hér á Íslandi er verkefnið unnið í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar og Film Húsavík, sem rekur lítið kvikmyndaver á Húsavík.

„Þetta snýst ekki bara um að kenna kvikmyndagerð,“ segir sænska kvikmyndagerðarkonan Maya Lindh. „Þetta snýst um að gefa ungu fólki rödd, efla sjálfstraust og byggja upp samfélag.“

Í búðunum munu þátttakendur læra allt ferlið, frá hugmyndavinnu og handritsgerð yfir í leikstjórn, kvikmyndatöku, hljóðvinnslu og klippingu. Seinni hluti búðanna fer svo í að framleiða eigin stuttmyndir í hópum.

Jenný Lára, sem leiðir verkefnið hér á landi, segir mikilvægt að skapa slík tækifæri fyrir ungt fólk utan stærstu þéttbýliskjarna. „Við höfum ekki alltaf aðgang að sömu tækifærum og stærri staðir. Kvikmyndagerð er frábær leið til að koma röddum fólks á framfæri, sérstaklega þar sem myndirnar geta ferðast út fyrir staðinn sjálfan.“Áhersla verkefnisins er á að styrkja ungt fólk í dreifbýli og tengja það saman yfir landamæri. Siggi Holm, kvikmyndagerðarmaður og kennari í Svíþjóð, bendir á að þó tækni sé fólki aðgengilegri í dag og flestir með 4K myndavél í símunum sínum, þá sé sagan enn það sem skiptir mestu máli. „Krakkar í dag eru með myndavél í vasanum, en það sem skiptir máli er sagan og hjartað sem fer í hana, og það sem við höfum skynjað er að þetta er mjög sterkt hjá ungu fólki í dreifbýli.“Valið verður úr umsóknum og fá ungmenni frá hverju landi tækifæri til að taka þátt og verður sagt nánar frá verkefninu þegar umsóknarferlið opnar.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link