Til baka
3 Apr 2026

Nýr menningarsamningur á milli Akureyrarbæjar og ríkis undirritaður.

Á skírdag undirrituðu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, endurnýjaðan menningarsamning milli Akureyrarbæjar og íslenska ríkisins.

Megintilgangur samningsins er  þróun og starfsemi listasafns, atvinnuleikhúss, sinfóníuhljómsveitar og menningarhúss á Akureyri. Samningurinn er að þessu sinni jafnframt tengdur beint við þá stefnu að Akureyri verði formlega svæðisborg á Íslandi. Litið er á menningarstarf sem mikilvæga innviði í samfélaginu og með því að efla þá vilja ríki og bær stuðla að þróun og uppbyggingu Akureyrar sem svæðisborgar. Samstarfið eykur þannig aðgengi að menningu fyrir alla, óháð búsetu og skapar atvinnutækifæri fyrir listafólk sem vill gera Akureyri að sínum starfsvettvangi.

Samningurinn gildir til 4ra ára og er heildarframlag ríkisins til verkefna hans um 1.300 m.kr. en heildarkostnaður á sama tíma er áætlaður um 4.300 m.kr. og hlutur ríkisins því um 30%.

Frá tónleikum SinfoniaNord og Atla Örvars á skírdag

Ásthildur Sturludóttir segir af þessu tilefni: „Ég er mjög ánægð með þennan nýja samning og ljóst að menningarmálaráðherra leggur hér þung lóð á vogarskálar þess að efla Akureyri sem svæðisborg en hugmyndin um hana er að mínu mati óhugsandi án þess að við gerum ráð fyrir öflugri atvinnustarfsemi í menningu og listum. Við þurfum um leið að skapa okkur sérstöðu og breikka framboðið á þessu sviði á Íslandi og efla sköpunarkraftinn okkur öllum til heilla.“

Logi Einarsson segir það vera eina af stefnuáherslum ríkisstjórnarinnar að auka aðgengi þjóðarinnar að menningu óháð búsetu og efnahag. Í því felist aukin tækifæri til þátttöku í skapandi starfi, til að sækja menningarviðburði og starfa við menningu. „Menning er límið í hverju samfélagi og við vitum að hún skiptir máli þegar fólk ákveður hvar það vill búa. Á Akureyri er blómlegt menningarlíf og þar eru menningarinnviðir og stofnanir til staðar sem standa þarf vörð um og efla,“ segir Logi Einarsson.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link