Til baka
31 Oct 2019

Nýr veitingaaðili í Hof

Nýr veitingaaðili mun taka við rekstri veitingastaðarins í Menningarhúsinu Hofi í byrjun nóvember. Nýi staðurinn heitir Eyrin Restaurant og mun leggja áherslu á létta rétti í smáréttastíl; rétti sem hægt er að deila yfir góðum drykkjum. Einnig verður boðið upp á bröns um helgar.

„Nafnið var valið með tilvísun í Eyrina á Akureyri og þar sem lögð verður áhersla á íslenska rétti þá vildum við hafa nafnið á íslensku,“ segir Guðmundur Ragnar Sverrisson matreiðslumaður og eigandi Eyrarinnar.

Guðmundur Ragnar útskrifaðist sem matreiðslumaður árið 2000. Eftir útskrift hóf hann störf á Hótel Sögu en árið 2002  flutti hann erlendis og starfaði í Brussel í tvö ár. Þaðan lá leiðin árið 2004 til Sviss þar sem Guðmundur starfaði á ýmsum veitingastöðum sem yfirmatreiðslumaður og lærði m.a. líbanska matargerð. Einnig starfaði hann sem matreiðslukennari í César Ritz hótelskólanum. Í Sviss kynntist Guðmundur eiginkonu sinni, Aðalheiði Hannesdóttir.

Árið 2012 ákvað fjölskyldan, sem þá taldi þrjú börn, að flytja til Íslands þar sem Guðmundur tók þátt í opnun ION hótels á Nesjavöllum og vann þar sem yfirmatreiðslumaður þar til árið 2014. Þegar fjórða barnið bættist í fjölskylduna árið 2014 kom enn eitt tækifærið í hendurnar en þá tók Guðmundur við starfi yfirmatreiðslumanns starfsmannamötuneytis PwC.

Nú toga ræturnar norður yfir heiðar en kona Guðmundar, Aðalheiður er fædd og uppalin á Akureyri og Guðmundur á Sauðárkróki. „Nú eru börnin orðin fimm og ræturnar toga yfir heiðar. Fjölskyldan hlakkar mikið til að koma norður og takast á við þessa spennandi áskorun,“ segir Guðmundur Ragnar.

Menningarfélag Akureyrar þakkar Hallgrími Sigurðarsyni og starfsfólki 1862 Nordic Bistro fyrir frábært samstarf síðustu árin.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link