Til baka
5 Oct 2020

Nýsköpun í kvikmyndatónlist í stað tónleika á tímum faraldurs

Kvikmyndaverkefnið SinfoniaNord hefur bjargað verkefnastöðu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem, ástandsins vegna, hefur þurft að fresta fjölmörgum tónleikum. Verkefnið hófst árið 2015 og snýst um að þjónusta alþjóðlegan afþreyingariðnað. SinfoniaNord hefur vaxið og dafnað ár frá ári en frá því í mars hefur verkefnið þjónustað að minnsta kosti tvö kvikmyndatónlistarverkefni í mánuði.

Nú skal bæta í og hefur sinfóníuhljómsveitin breytt frestuðum tónleikadagsetningum í haust í upptökudagsetningar og ræðst þannig í að skapa ný menningarverðmæti. Þar á meðal er eitt stærsta kvikmyndatónlistarverkefnið til þessa þegar ný tónlist eftir tónskáldið Þórð Magnússon við stórvirkið Saga Borgaraættarinnar verður hljóðrituð. Kvikmyndin var tekið upp árið 1919 og var eitt stærsta kvikmyndaverkefni Evrópu á tímum þöglu myndanna. Nú hefur Kvikmyndasafn Íslands, í samvinnu við Gunnarsstofnun, gert við þessa gömlu mynd þannig að hægt er að sýna hana í kvikmyndahúsum í fullum gæðum með nýrri kvikmyndatónlist sem leikin er af Kvikmyndahljómsveit Íslands; Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, framkvæmdarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, segir ljóst að SinfoniaNord verkefnið snúist ekki aðeins um nýsköpun heldur einnig varðveislu menningarverðmæta.

„Og það sem er magnað er að þessi mynd, Saga Borgaraættarinnar, hafi verið gerð hér í kjölfarið á spænsku veikinni og síðan sýnd hér 100 árum seinna með nýrri tónlist í kjölfarið á nýjum faraldri.“

Myndin verður aðgengileg almenningi í stafrænu formi á efnum og á DVD.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link