Hin geysivinsæla gamansýning Á rauðu ljósi eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttir sem hefur verið sýnd yfir 100 sinnum fyrir fullu húsi í Kjallaranum og á Stóra sviði Þjóðleikhússins er á leiðinni norður. Upphaflega átti aðeins að vera ein sýningarhelgi. Eftir að sú helgi seldist upp á mettíma var bætt við aukasýningu sem er nánast orðin uppseld. Því hefur verið bætt við auka auka sýningu til að sinna eftirspurn. Stína talar í þessum einleik til áhorfenda á bráðfyndinn hátt en þó af einlægni um hispursleysi um stress, streitu, seiglu, aumingjaskap og dugnað. Hægt er að tryggja sér miða á þessa vinsælu sýningu hér: Á RAUÐU LJÓSI – Miðasala
Tengdar bloggfærslur
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord
Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi
Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi
Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.


