Til baka
8 Dec 2020

Opnum tíma Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar streymt heim í stofu

Haustönn Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar lauk með opnum tíma um síðustu helgi. Vegna veirunnar var ekki hægt að bjóða foreldrum og forráðamönnum að koma að horfa en í staðinn nýttum við okkur tæknina og streymdum herlegheitunum heim í stofu.

Tæplega 90 nemendur í níu hópum sóttu námskeið LLA sem fram fóru í Samkomuhúsinu og Hofi.

„Við hlýddum Víði og gerðum hlé á kennslunni en náðum að bæta nemendum upp tapaðan tíma á góðum lokaspretti. Það voru flottir krakkar sem stóðu á stóra sviðinu í HOFI og sýndu afrakstur haustsins. Námskeið vorannar verða auglýst bráðlega og þá er um að gera að hafa hraðar hendur því þau fyllast fljótt,”

segir María Pálsdóttir skólastjóri leiklistarskólans.

Hægt er að skoða fleiri myndir á facebook-síðu Leikfélags Akureyrar.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link