Til baka
13 Nov 2019

Ör, Ðe Lónlí Blú Bojs og Gustur um goluengi

Það verður eitthvað fyrir alla hjá Menningarfélagi Akureyrar um helgina.

Gestasýning Þjóðleikhússins Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) verður í Samkomuhúsinu föstudags- og laugardagskvöld. „Ég er að skrifa gegn myrkrinu í heiminum,“ sagði Auður Ava Ólafsdóttir þegar hún hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2018 fyrir skáldsöguna Ör, sem kom út árið 2016. Skáldsagan spratt á sínum tíma af uppkasti Auðar Övu að leikriti sem hún hefur nú lokið við að semja. Leikritið er sjálfstætt verk sem lýtur eigin lögmálum, þótt það byggist á sama grunni og skáldsagan. Leikritið ÖR (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) er í senn órætt, fyndið og ágengt, og spyr áleitinna spurninga um lífið og dauðann, samskipti kynjanna og leit að samastað í veröldinni.

Á laugardagskvöldið verður söngleikurinn Ðe Lónlí Blú Bojs í Hofi. Söngleikurinn er með lögum frá Ðe Lónlí Blú Bojs sem allir ættu að kannast við, þar á meðal Heim í Búðardal, Harðsnúna Hanna og Diggi Liggi Ló. Leikendur eru Agla Bríet Einarsdóttir, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Ingi Þór Þórhallsson, Jón Svavar Jósefsson, Mímir Bjarki Pálmason, Styr Orrason og Vilberg Andri Pálsson.

Á sunnudeginum er komið að tónleikunum Gustur um goluengi. Hjónin Elvý G Hreinsdóttir og Eyþór Ingi Jónsson fá Birki Blæ, Hauk Pálmason og Stefán Gunnarsson í lið með sér og munu þau flytja hugljúfa og þjóðlega tónlist frá ýmsum heimshornum. Viðburðurinn hlaut styrk frá listsjóðnum VERÐANDI.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link