Til baka
3 Nov 2025

Risastórt Rokkland hjá SinfóniaNord

Síðastliðinn laugardag fóru fram risastórir tónleikar í Hofi þegar SinfóniaNord sameinaðist Rokklandi á Rás 2 og hélt epíska tónleika þar sem sinfónískt rokk var leikið fyrir troðfullu húsi. 

Árið 2024 hafði Óli Palli “forseti” Rokklands samband við Þorvald Bjarna tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og stakk upp á að 30 ára afmæli Rokklands yrði fagnað á Akureyri. Þorvaldur þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um og var lagt af stað í vegferð sem hefur verið tæplega ár í undibúningi 

Una Torfa, Sigríður Thorlacius, Stína Ágústsdóttir, Jónas Sig, Magni Ásgeirs, Eyþór Ingi, Jónína Björt og Andrea Gylfa skiptust á að flytja margar af helstu perlum tónlistarsögunnar með dyggri aðstoð frá SinfóniaNord í hljómsveitarstjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur,  Todmobile bandinu, 50 manna kór og sönghópnum Rok frá Akureyri. 

Uppsetning og framkvæmd var á heimsmælikvarða og var hver fermeter á sviðinu í Hofi nýttur fyrir listamenn, hljóðfæri og annan búnað.  Var þetta enn ein sönnun þess hversu magnaður tónleikastaður Hof í raun er. Upplifun listamanna sem og áhorfenda af viðburðinum var öll á sama veg, hreinlega stórkostleg upplifun!

Næstu verkefni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands eru tónlistin í Birtíng sem sett verður upp hjá Leikfélagi Akureyrar eftir áramót, tónleikar í mars þegar tónskáldið Jón Nordal verður heiðrað, Ljós í myrkri, þar sem verk Atla Örvarssonar verða flutt og svo Sirkutónar, sem ætlað er nemendum grunnskólanna. Samhliða því er svo nóg að gera hjá SInfóniaNord við upptökur á fjölbreyttum tónlistarverkefnum. 

Hægt er að kynna sér nánar verkefni Sinfóníuhljómsveitarinnar inn á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar: Viðburðir Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands 24/25

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link