Til baka
14 Jan 2025

Ross Jamie Collins kemur norður

Ross Jamie Collins mun hljómsveitastýra Sinfóníuhljómsveit Norðurlands þegar viðburðurinn Meistarar Strengjanna verður fluttur í Hofi á Akureyri. Hann hefur grunn sem selló leikari, píanisti og barítónn og þrátt fyrir ungan aldur (fæddur 2001) hefur Ross mikla reynslu af hljómsveitarstjórnun en hann stýrði sínum fyrsta konsert aðeins 15 ára að aldri. Hann hefur grunn sem Selló leikari, píanisti og barítónn og hefur stýrt sinfóníuhljómsveitum út um allan heim eins og t.d. Boston Symphony, Helsinki Philharmonic, Evergreen Symphony í Taipei, London’s Philharmonia Orchestra og Tokyo Symphony Orchestra.

Íslendingum er hann góðkunnur þar sem hann hefur stýrt viðburðum fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Það er því mjög spennandi fyrir norðlendinga að fá svo ungan og reyndan hljómsveitarstjóra til að stýra þessum einstaka tónlistarviðburði sem framundan er.

Meistarar Strengjanna verður sunnudaginn 26. janúar kl. 16.00 í aðalsal Hofs. Nánari upplýsingar og miðasala er á www.MAK.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link