Til baka
18 Jun 2020

Sarah Class og The Hitman‘s Wife‘s Bodyguard í Hofi

Hollywood verkefni SinfoniaNord halda áfram en á morgun fara fram í Hofi upptökur á tónlist The Hitman‘s Wife‘s Bodyguard. Höfundur tónlistar kvikmyndarinnar er norðlenska tónskáldið Atli Örvarsson.

The Hitman‘s Wife‘s Bodyguard er framhald á kvikmyndinni The Hitmans‘s Bodyguard og skartar stjörnunum Ryan Reynolds, Samuel L. Jackson, Salma Hayek, Frank Grillo, Antonio Banderas og Morgan Freeman, ásamt fleirum. Upptökurnar eru á meðal stærstu verkefna SinfoniaNord til þessa en hátt í 100 manns koma að verkefninu.

Á sama tíma starfar hljómsveitin með breska tónskáldinu og ungstirninu Sarah Class. Sarah semur tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarp og hefur unnið til fjölda verðlauna og tilnefninga, til að mynda BRIT og EMMY tilnefninga. Á meðal verkefna hennar eru náttúrulífsþættir BBC sjónvarpsstöðvarinnar. Það er því í nógu að snúa í Hofi þessa dagana.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link