Til baka
20 Jun 2024

Sigga Sunna sviðs- og brúðuhönnuður Litlu Hryllingsbúðarinnar í alþjóðlegri dómnefnd

Sigríður Sunna Reynisdóttir, sviðs- og brúðuhönnuður Litlu Hryllingsbúðarinnar verður í dómnefnd alþjóðlegrar brúðuhátíðar ásamt Bonnie Kim brúðulistakonu frá Hawaii og Friðriki Friðrikssyni.

Sigríður Sunna er með BATP gráðu frá brúðuleikhús – og sviðshöfundabraut Royal Central School of Speech and Drama og hefur starfað við hönnun leikmynda, búninga og leikbrúða hér á Íslandi sem og víðar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún gæðir svið Leikfélags Akureyrar lífi því hún hannaði leikmyndina fyrir Lísu í Undralandi árið 2014. Fyrir Þjóðleikhúsið hefur hún t.a.m. hannað leikmynd og búninga fyrir Ástu, leikmynd og búninga fyrir Ör og leikmynd fyrir Kópavogskróniku og Meistarann og Margarítu. Af verkefnum í Borgarleikhúsinu má nefna Tvískinnung, 1984, Hamlet litla, Vísindasýningu Villa og Lóaboratoríum. Það má því segja að plantan ógurlega úr Litlu Hryllingsbúðinni verði í góðum höndum næsta haust og vetur hjá Leikfélagi Akureyrar.Alþjóðlega brúðuhátíðin er nú haldin í fjórða sinn á Hvammstanga.

Forsölutilboð á Litlu Hryllingsbúðina er í fullum gangi

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link