Til baka
23 May 2017

Skapandi aflvaki til framtíðar

Öflug miðstöð skapandi greina hefur byggst upp með stofnun Menningarfélags Akureyrar sem skilar menningarlegum verðmætum til samfélagsins ásamt því að vera eftirsóknarverður vettvangur fyrir listviðburði, fundi og ráðstefnur af landinu öllu.

Í lok starfsársins kynnti Menningarfélagið afrakstur stefnumótunarvinnu sem starfsfólk félagsins og fulltrúar stjórna þeirra félaga sem það mynda tóku þátt í. Félögin eru:  Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag Akureyrar og Menningarfélagið Hof.  Í stefnunni er megin áhersla lögð á eflingu atvinnustarfsemi í sviðslist og sinfónískri tónlist á Akureyri ásamt því að ýta frekar undir aðdráttarafl Hofs og Samkomuhússins fyrir listviðburði, fundi og ráðstefnur.  Menningarfélag Akureyrar er gróðurhús fyrir hugmyndir, staður þar sem draumar geta ræst. Rík áhersla er því á grasrótina og að fóstra listræna hæfileika, með það að leiðarljósi að sem flestir angar lista- og menningarlífs dafni og blómstri. Menningarfélagið vill hlúa að frumsköpun og veita ungu fólki tækifæri til að eiga stefnumót við áhorfendur og skapa þannig ný samfélagsleg verðmæti.

Segja má að upptaktur stefnumótunarinnar hafi hafist strax við stofnun félagsins og unnið hefur verið eftir þeim takti í vetur. Menningarfélagið er óhrætt við að takast á við áskoranir eins og frumflutning á nýjum íslenskum verkum, bæði á sviði leiklistar og sinfónískrar tónlistar. Síðastliðinn vetur setti Leikfélag Akureyrar upp fjölskyldusýninguna Núnó og Júníu og sýndi með því mikla áræðni, því það krefst hugrekkis að bjóða upp á eitthvað nýtt, eitthvað ókunnugt.  Allar sviðsuppfærslur Leikfélags Akureyrar undir hatti Menningarfélagsins hafa verið nýskrif, ný leikrit, leikgerðir eða samsköpunarverkefni. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frumflutti verk eftir Kjartan Valdimarsson og setti auk þess stórbrotna kvikmyndatónlist Atla Örvarssonar í glæsilega umgjörð með lifandi flutningi í Hamraborg við mikla hrifningu áhorfenda. Sinfóníuhljómsveitin hefur markað sér braut sem framsækin og áræðin hljómsveit. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri tók nýverið fyrir hönd Sinfóníuhljómsveitarinnar á móti athafna- og nýsköpunarverðlaunum Akureyrarbæjar fyrir frumkvöðlastarf í upptökum á kvikmyndatónlist í menningarhúsinu Hofi og sköpun nýrra tækifæra fyrir tónlistarfólk.

Framtíðarsýn Menningarfélagsins byggir á þeirri forsendu að aukið fé verði sett í framleiðslu, en framlög til reksturs Leikfélags Akureyrar hafa staðið í stað frá 2007 og ekki hefur heldur verið tekið tillit til verðlagsbreytinga hjá hinum félögunum í fjárframlögum hins opinbera til Menningarfélagsins. Aukið framleiðslufé mun gera Leikfélagi Akureyrar kleift að ráða til sín leikhóp og tónlistarsviði Menningarfélagsins mögulegt að veita atvinnutónlistarmönnum á Norðurlandi tækifæri til að lifa á list sinni. Áætlanir vetrarins hafa staðist og er reksturinn stöðugur.  Hinn rauði þráður í nýrri  stefnumótun er ekki einungis stóraukin listrænn og samfélagslegur ávinningur heldur einnig rekstur í sátt við umhverfi og samfélag.

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link