Til baka
26 Feb 2025

Snorri Sigfús tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna

Konsert nr. 2 fyrir hljómsveit eftir Snorra Sigfús Birgisson sem var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hofi þann 24. Nóvember síðastliðinn hefur verið tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2025 sem Tónverk ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar.

Konsert nr. 2 fyrir hljómsveit var saminn á árunum 2020 til 2024 fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að beiðni hljómsveitarinnar. Rætur þess liggja víða og hafði Snorri meðal annars til hliðsjónar stemmu sem Þorbjörn Kristinsson (1918–2001) kvað en Þorbjörn var um árabil barnaskólakennari við Glerárskóla. Stemmuna kvað Þorbjörn við eftirfarandi vísu eftir bróður sinn, Hjörleif Kristinsson (1918–1992):Dags er glæta þrotin þáþokan vætir kinnar.

Skjóna fætur skripla á

skuggum næturinnar.Tónlistarsjóður og Launasjóður tónskálda veittu styrki til verksins.

 

Snorri Sigfús Birgisson er fæddur 29. apríl 1954. Hann stundaði píanónám fyrst hjá

Gunnari Sigurgeirssyni en innritaðist síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar lærði hann á píanó hjáHermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni en lagði einnig stund á tónsmíðar hjáÞorkeli Sigurbjörnssyni. Hann lauk einleikaraprófi 1974. 1974-1975 stundaði hann framhaldsnám ípíanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum, 1975-76 tónsmíðanám í Osló hjá Finn Mortensen (enn fremur nám í raftónlist hjá Lasse Thoresen og “sonology” hjá Thoresen og Olav Anton Thommessen) og 1976-1978 lærði hann tónsmíðar hjá Ton de Leeuw í Amsterdam.

Snorri hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hannkom heim frá námi (1980). Hann hefur samið einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist og sinfónísk verk. Hann er félagi í CAPUT hópnum.

 

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarfélag Akureyrar óska Snorra innilega til hamingju með tilnefningu.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link