Til baka
16 Oct 2019

Söngdívan Andrea og Galdramolaganga

Um helgina fara fram stórtónleikar í Hofi þegar söngdrottningin Andrea Gylfadóttir og bandaríski saxafónsnillingurinn Phillip Doyle stíga á svið ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Flutt verða frábær lög úr kvikmyndum á borð við Goldfinger, Smile og Calling you en um framhald af bíóbandsþema Andreu til margra ára er að ræða sem og vinsælum tónleikum hennar með Doyle í Hofi.

Meistarar á borð við Einar Scheving, Pálma Gunnarsson og Kristján Edelstein ganga til liðs við sinfóníuhljómsveitina en Kjartan Valdemarsson hefur útsett lögin og verður hljómsveitarstjóri. Tónleikarnir fara í Hamraborg á laugardagskvöldið. Miðarnir hafa rokið út en enn er eitthvað eftir af miðum. 

Á laugardeginum fer fram spennandi Galdramolaganga klukkan 14 á Glerártorgi þegar Blær, Bjartur og Sóley, úr leikritinu Galdragáttin og þjóðsagan mæta. Allir krakkar eru velkomnir og geta átt von á að vinna miða á sýninguna sem nú er sýnd í Samkomuhúsinu. 

Galdragáttin er svo sýnd á sunnudeginum. Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur og fékk til að mynda fjórar stjörnur í Morgunblaðinu og nú hefur verið bætt við aukasýningu laugardaginn 26. október. Hér er hægt að fá miða.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link