Til baka
31 Jul 2017

Spari Dynheimaball í Hofi um versló

Hefð er fyrir því um verslunarmannahelgina á Akureyri að  fram fari svokallað Dynheimaball og er um að ræða dansleik fyrir fullorðið fólk (allir eldri en 30 ára). Er þá verið að vísa í félagsmiðstöðina Dynheima þar sem ungt fólk dansaði á áttunda og níunda áratugnum og fá margir fiðring í tærnar við tilhugsunina eina. Í ár verður dansleikurinn settur í sparibúning og haldinn hér í Hofi nánar tiltekið í Hömrum og Hamragili. Laugardaginn 5. ágúst kl 22.00 hefst ballið og því ráð að pússa dansskóna og þurrka rykið af spariklæðnaðnum. Það eru plötusnúðarnir N3 og veitingastaðurinn 1862 Nordic Bistro sem standa fyrir Spari Dynheimaballinu.

Miðasala er hafin á mak.is – hér getur þú keypt miða.

Snyrtilegur klæðnaður og 30 ára aldurstakmark.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link