Til baka
30 Oct 2018

Spennandi helgi framundan

Að venju verður nóg um að vera hjá Menningarfélagi Akureyrar um helgina. Á fimmtudagskvöldið verður þriðja sýningin af söngleiknum Kabarett í Samkomuhúsinu. Kabarett hefur fengið einstaklega jákvæðar viðtökur og fékk til að mynda afar jákvæða gagnrýni í Menningunni á RÚV í vikunni. Fjórða sýningin er svo á laugardagskvöldið. Fleiri sýningar eru komnar í sölu og því um að gera að tryggja sér miða á þessa frábæru uppfærslu.

Á föstudaginn hefst Strengjamót Tónlistarskóla Akureyrar þar sem um 200 börn koma saman í Hofi. Fjörið nær svo hátindi á sunnudaginn með sameiginlegum tónleikum hljóðfæraleikarana ungu.

Á laugardagskvöldið verða risa tónleikar í Hamraborg þegar Halloween Horror Show mætir með hryllilegustu tónleikasýningu sögunnar. Á meðal þeirra sem koma fram eru Magni, Birgitta Haukdal, Stebbi Jak, Greta Salóme, Dagur Sigurðsson og Ólafur Egilsson ásamt karlakór, hljómsveit, bakröddum, dönsurum og leikurum. Um alvöru tónleikasýningu er að ræða þar sem öllu er tjaldað til og enginn fer óskelkaður út.

Sunnudagsmorguninn hefst svo á rólegri nótunum með skemmtilegum barnamorgni fyrir allra minnstu börnin. Þessi þriðji barnamorgun vetrarins ber nafnið Krílasöngvar með Sigrúnu Mögnu. Leikin verða lög og leikir í rólegu umhverfi með áherslu á tengsl snertingar, söngs og hljóðfæri. Sungin eru þekkt barnlög og þulur og notaðar hristur og fleiri hljóðfæri. Enginn aðgangseyrir er á barnamorgna en NORÐURORKA styrkir viðburðina. 

Á sunnudaginn flytja Duo Zweisam, Katrín Szamatulski og Þóra Kristín Gunanrsdóttir verk fyrir flautu og píanó sem öll tengjast ljóðum og söng á tónleikunum Þegar orða er vant í Hofi. Erótík, óendurgoldin ást og rómantískur dauði, japönsk tónlistarhefð, undirfögur orðlaus ljóð og grískur harmsöngur er eitthvað sem enginn má missa af.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link