Mikið verður um dýrðir þegar Forleikurinn 1812 eftir P. I. Tchaikovsky verður fluttur. Verkið sem er skrifað fyrir sinfóníuhljómsveit, kirkjuklukkur og 16 fallbyssur samdi Tchaikovsky til að minnast árásar Napóleons á Moskvu árið 1812 og sigur Rússa á her Napóleons. Forleikurinn var frumfluttur árið 1880 og inniheldur hann stef úr mörgum þekktum lögum sem tengjast franskri og rússneskri sögu.
Forleikinn ætlar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að flytja með tilheyrandi fallbyssuskotum á sviðinu í Hofi. Sérlegur sprengjusérfræðingur kemur til liðs við hljómsveitina og slagverksleikari með stáltaugar sinna verkinu þegar á hólminn er komið. Þetta er í fyrsta sinn sem verkið er flutt með þessum hætti á Íslandi.
Miðasala er hafin í Hofi og nú er að tryggja sér miða í tíma á einstakan viðburð! Einnig er hægt að kaupa miða hér.


