Til baka
27 Mar 2024

Starf leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar laust til umsóknar

Menningarfélag Akureyrar auglýsir starf leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar laust til umsóknar.

Leikfélag Akureyrar er leiklistarsvið Menningarfélags Akureyrar og eitt af þremur kjarnasviðum þess og vinnur leikhússtjóri náið með öðrum sviðsstjórum Menningarfélagsins og framkvæmdastjóra félagsins.

Leikhússtjóri ber listræna ábyrgð á starfsemi Leikfélags Akureyrar, á verkefnavali og framleiðslu, áætlanagerð og eftirliti verkefna leiklistarsviðs. Leikhússtjóri sér um mannaráðningar og samningagerð við launþega og verktaka vegna uppsetninga á leikverkefnum auk þess að hafa yfirumsjón með leiklistarskóla og samstarfsverkefnum sviðins.

Viðkomandi þarf að hafa háskólamenntun á sviði leiklistar, stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, hafa hæfileika til nýsköpunar og brennandi áhuga og reynslu af starfi leikhúsa.

Til að sækja um þarf að senda ítarlega ferilskrá og umsóknarbréf þar sem rakin er hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknarfrestur er til og með 21.04 2024. Umsóknir skulu sendar á netfangið umsoknir@mak.is. Umsjón með ráðningunni hefur framkvæmdastjóri, Eva Hrund Einarsdóttir, ásamt stjórn Menningarfélagsins.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link