Til baka
3 Sep 2020

Stóraukið samstarf Þjóðleikhússins og Leikfélags Akureyrar

Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri, og Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, skrifuðu í dag undir samkomulag um stóraukið samstarf menningarstofnananna tveggja. Samkomulagið kveður á um fjölgun gestasýninga, sameiginlegar uppsetningar og miðlun þekkingar á milli starfsfólks .

Þjóðleikhúsið og Leikfélag Akureyrar ætla á næstu árum að stórauka samstarf á milli stofnananna með það að markmiði að efla leiklist í landinu, stuðla að auknu flæði á milli landshluta, auka verðmætasköpun beggja stofnana, gera sýningar hvors leikhúss aðgengilegar stærri áhorfendahópi, miðla þekkingu og skapa fjölbreytni.

Samkomulagið er fjórþætt. Leikhúsin munu sýna gestasýningar a.m.k. einu sinni á ári hvort hjá öðru. Í öðru lagi munu þau sameinast um að framleiða eina sýningu sem verður sett upp á báðum stöðum. Síðast en ekki síst munu verða aukin tækifæri fyrir starfsfólk húsanna til að auka samvinnu sín á milli og miðla þekkingu og lista- og tæknifólk mun í einhverjum tilfellum geta starfað við verkefni í báðum leikhúsum.

„Þjóðleikhúsið er leikhús allra landsmanna og við stefnum að því að fjölga leikferðum um landið. Samhliða viljum við auka enn samstarf við Leikfélag Akureyrar og auka sýningarhald á Akureyri. Það er trú okkar að þetta samkomulag muni verða til þess að efla leiklist í landinu öllu og við viljum gjarnan styðja við starfsemi leikhúss á Akureyri. Með þessu samkomulagi er opnað fyrir aukið samstarf, sýningarhald og þekkingarmiðlun. Það er líka tilhlökkunarefni að geta boðið höfuðborgarbúum upp á vönduðustu sýningarnar frá Akureyri. Þetta er mikið tilhlökkunarefni,“ sagði Magnús Geir við þetta tækifæri.

Á leikárinu mun Þjóðleikhúsið sýna Upphaf eftir David Eldridge á Akureyri og stefnt er að sýningu á Vorið vaknar í uppsetningu LA á næsta ári. Þá munu leikhúsin vinna sameiginlega að uppsetningu á Krufning sjálfsmorðs eftir Alice Birch.

„Við á Akureyri erum afar spennt fyrir auknu samstarfi við Þjóðleikhúsið og sjáum í því mikil tækifæri bæði varðandi miðlun þekkingar og samvinnu og líka að þarna fáum við tækifæri til að stækka okkar markað og ná til fleiri áhorfenda. Samstarf þessara stofnanna eykur slagkraft og stuðlar að fjölbreytni,“ segir Marta Nordal.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link