Til baka
9 Nov 2023

Sturtuhausinn, Pabbinn finnur afann og Hlýnun

Helgin í Hofi hefst í kvöld þegar Verkmenntaskólinn á Akureyri heldur sína árlegu söngvakeppni, Sturtuhausinn. Miðasala er í fullum gangi á mak.is. Kynnar verða Villi Jr. og Keli Pelikani en enginn annar en Friðrik Dór kemur og skemmtir áhorfendum. Dómarar eru Bryndís Ásmunds, Ívar Helgason og Jónína Björt. Viðburðurinn hefst klukkan 20. 

Á laugardagskvöldinu er komið að verkinu Pabbinn finnur afann. Leikararnir Sigurður Sigurjónsson og Bjarni Haukur Þórsson leiða nú saman hesta sína að nýju. Samstarf þeirra ættu flestir Íslendingar að þekkja því þúsundir hafa í gegnum tíðina séð uppsetningar þeirra og kvikmynd. Nú hins vegar standa þeir saman á sviði í fyrsta skiptið. Glænýtt íslenskt verk sem er í senn mjög fyndið og hjartnæmt.  Miðasala á mak.is. 

Sýning Jonnu, Hlýnun, er enn í fullum gangi í Hofi og er opin þegar húsið er opið. Verkin á sýningunni eru óhefðbundin textílverk sem Jonna segir vísa í ruglið og bullið í neyslu okkar og það sem sé að gerast í heiminum. Öll velkomin á sýninguna. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link