Til baka
23 Apr 2025

Sumargleði fyrir börn á öllum aldri í Hofi á sumardaginn fyrsta

Við bjóðum sumarið velkomið með opnum faðmi hér í Hofi með hlátrasköllum barna í dillandi dansi, spennandi trommuslætti og seiðandi söng úr teiknimyndum ásamt hressum skapandi ungum drengjum sem standa fyrir tískusýningu. Áhugasöm börn geta svo prófað hárkollur, búninga og skó um leið og þau taka myndir af sér í herlegheitunum.

Fjöldinn allur af lóum munu hefja sig á loft heim til þeirra barna sem hafa mótað þær í listsmiðju Jonnu og Bildu.

Listaverk nemenda í 2. – 10. Bekk Naustaskóla, sem endurspegla hvernig þeir túlka fegurð heimsins í kringum sig,

halda svo fallega utan um dagskrána þennan fyrsta dag sumars.

Hér verður sannkölluð fjölskyldustemning frá kl. 13-15!Hér fyrir neðan má sjá dagskrána:

BúningasmiðjaHamragil frá kl. 13-15

Sjóræningi eða ljón? Tannálfur eða trúður?Komdu og prófaðu búninga úr verkum Leikfélags Akureyrar og taktu mynd af þér.

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar

Lóur

Smiðjur tileinkaðar Lóunni Lóur málaðar á léreft saumaðar og fylltar með kembu. Kennarar: Brynhildur og Jonna

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar

Kan(l)ínudans er orkumikið dansleikhús ætlað börnum (4-10 ára) og fjölskylduáhorfendum. Verkið er dansverk um tvær kanínur sem leika í leit að tengingu. Sýningin var unnin í sumar residensíu, 2023, á Dansverkstæðinu og var frumsýnd í apríl 2024, á Unga Festival í Tjarnarbíói. Sýningin hlaut tilnefningu Grímunnar í flokknum “Barnasýning ársins”. Í lok smiðjunnar verður boðið upp á frjálsan dans sem kanínurnar leiða.

Aðstandendur og höfundar sýningarinnar eru danslistafólkið Sóley Ólafsdóttir, íslenskur dansari og Leevi Mettinen, finnskur dansari. Plötusnúðurinn DJMAR!A vinnur í kanínu teyminu sem plötusnúður og kemur einnig fram í sýningunni sem kanína. Fríða Björg Pétursdóttir vann í nánu samstarfi í karaktersköpun í ferlinu, við gerð búninga. Marta Ákadóttir er í teyminu sem ytra auga og dramatúrg og Katrín Hersisdóttir er grafískur hönnuður teymisins, hún teiknar teiknimyndir af kanínunum og vinnur í allri grafík sem viðkemur verkefninu og styður þannig sjónrænan heim Kan(l)ínudanins

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar

Elskar þú eða elskaðir þú teiknimyndir? Komdu, hlustaðu og syngdu með uppáhalds teiknimyndalögum Jónínu og Þórðar!Nokkur vel valin lög uppúr tónleikunum þeirra Teiknimyndalögin okkar verða flutt á sumardaginn fyrsta.

Komdu og syngdu með okkur.

Undanfarna mánuði hafa þeir Helgi Hrafn Magnússon og Kjartan Gestur Guðmundsson saumað föt sem flest eru endurunnin úr gömlu efnum og flíkum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur fatamerki þeirra CRANZ hlotið verðskuldaða athygli fyrir hönnun sína og meðal annars verið fjallað um þá í Landanum og á Akureyri.net

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar

Leitin að regnboganum er dans og tónlistarsmiðja fyrir börn á aldrinum 3-6 ára. Ósk og Grettir Græni koma alla leið frá Regnbogalandi að skemmta börnunum við nýja barnatónlist. Leitin að regnboganum á að sýna börnum mikilvægi hugrekkis, þakklætis, virðingar og hjálpsemi. Unnið verður með dans, tjáningu, slæður, hristur og litina. Börnin fá því að vera virkir þáttakendur í ævintýraheimi Regnbogalands. Áhersla verður á að efla hreyfifærniþroska, ímyndunaraflið og sköpunakraft.

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar

 

Dillandi afrísk dans- og trommugleði fyrir alla fjölskylduna.

FAR Fest Afríka á Íslandi var stofnuð árið 2009 af þeim hjónunum Cheick Bangoura og Kristínu Álfheiði Árnadóttur frá Akureyri og hefur menningarhátíðin FAR Fest Afríka verið haldið árlega síðan. Þar hefur verið boðið upp á viðburði, námskeið og/eða fræðslu. Í kringum þessa viðburði og hið öfluga, fjölbreytta og skemmtilega samstarf stofnaði Cheick Bangoura félagið ,,Afríka Lole“. Cheick Bangoura hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífinu á Íslandi, spilað með Stuðmönnum, Big bandi Samma og Amabadama.

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link