Til baka
29 Sep 2023

Sveppi leikur í And Björk, of course

Enginn annar en Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, leikur í verkinu And Björk, of course sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar. Aðrir leikarar eru Jón Gnarr, Eygló Hilmarsdóttir, Arna Magnea Danks, Davíð Þór Katrínarson, María Pálsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir. 

„Það er ekkert nema tilhlökkun að koma til Akureyrar og vinna með góðu fólki, enda hefur það verið þannig í þau skipti sem ég kem þangað, hvort sem ég er að skemmta öðrum eða mér, þá er alltaf hrikalega gaman. Svo skilst mér að það sé alltaf gott veður fyrir norðan,” segir Sverrir Þór. 

And Björk, of course eftir Þorvald er nærgöngul og hrollvekjandi hásádeila þar sem sjálfsmynd þjóðar er lýst án miskunnar. Verkið er í senn sprenghlægilegt, óviðeigandi og óþægilegt. Nokkrar persónur koma saman á sjálfshjálparnámskeiði undir stjórn leiðbeinanda og eru þau öll í leit að sjálfum sér og staðfestingu á eigin virði. Verkið fjallar um sjálfsmynd okkar og hinn eilífa vanmátt manneskjunnar í að mæta sjálfri sér eða taka ábyrgð á lífi sínu.

Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir. Miðasala er í fullum gangi á mak.is. Forsölutilboð gildir til 15. október!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link