Til baka
31 May 2021

Sviðslistaverkið Tæring sýnt í haust

Sýningar á sviðslistaverkinu TÆRING verða teknar upp að nýju í haust. TÆRING verður eins og áður sýnt á Hælinu setri um sögu berklanna á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit. Verkið er innblásið af sögu berklasjúklinga sem þar dvöldu á síðustu öld og var frumsýnt haustið 2020. Verkið er samsköpun allra þátttakenda og er sérstaklega unnið inn í sýningarrýmið þar sem leiknum senum er blandað við vídeóverk og hljóðverk og einnig fara einhver atriði fram utandyra sem áhorfendur sjá út um glugga.

Listrænir sjórnendur sýningarinnar eru Vala Ómarsdóttir leikstjóri, Vilhjálmur B. Bragason leikskáld, Auður Ösp Guðmundsdóttir leikmynda- og búningahönnuður, María Kjartansdóttir vídeólistakona og ljósmyndari og Biggi Hilmars tónlistarmaður. Á meðal leikara eru Birna Pétursdóttir, Árni Beinteinn og Kolbrún Lilja Guðnadóttir. Verkefnið hlaut styrk í aukaúthlutun Leiklistarráðs í vor og styrk úr Sóknaráætlun og er samstarfsverkefni Hælisins seturs um sögu berklanna og Leikfélags Akureyrar.

Einungis 10 áhorfendur komast á hverja sýningu. Miðasala er hafin hér.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link