Til baka
30 Oct 2019

Þorsteinn snýr aftur í Samkomuhúsið

Stórleikarinn Þorsteinn Bachmann leikur í söngleiknum Vorið vaknar sem Leikfélag Akureyrar setur á svið Samkomuhússins í byrjun næsta árs. Þorsteinn er velkunnugur Samkomuhúsinu en hann hefur starfað hjá leikfélaginu bæði sem leikari og leikhússtjóri.

Þorsteinn er fullur tilhlökkunar að stíga á svið á ný í Samkomuhúsinu eftir um það bil 15 ára hlé:

„Þetta er eitt allra besta svið á landinu og þótt víðar væri leitað. Frábær hljómburður og notalegur salur með mikla sögu og góðan anda.“

Vorið vaknar verður frumsýnt í lok janúar. Söngleikurinn fjallar um fyrstu kynlífsreynslu, skólakerfið, kvíða og frelsisþrá unglinga í afturhaldssömu og þröngsýnu samfélagi 19. aldarinnar sem leyfir engin frávik frá hinu viðtekna.

Uppfærsla söngleiksins á Broadway árið 2006, hlaut átta Tony verðlaun og þar á meðal sem besti nýi söngleikurinn. Uppsetningin vann þar að auki fjölda annarra verðlauna og tilnefninga og hefur farið sigurför um heiminn allar götur síðan. Vorið vaknar er nú sett upp í fyrsta sinn í atvinnuleikhúsi á Íslandi.

Aðrir leikarar eru Ahd Tamini, Ari Orrason, Árni Beinteinn Árnason, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Eik Haraldsdóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Rúnar Kristinn Rúnarsson, Viktoría Sigurðardóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Marta Nordal leikstýrir.

Miðasala á VORIÐ VAKNAR er í fullum gangi hérna.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link