Til baka
11 Jun 2021

Þrennir tónleikar í Hofi í næstu viku

Það verður líf og fjör í Hofi í næstu viku þegar þrennir tónleikar fara fram í húsinu. Á mánudaginn leikur sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir allar sex einleikssvítur Johanns Sebastians Bach. Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði.

Miðvikudaginn 16. júní er komið að Winter Lullabies and Summer Jazz með tónlistarkonunni Diana Sus. Diana er tónskáld og söngkona sem hefur útskrifast af deild Skapandi Tónlistar í Tónlistarskólanum á Akureyri. Hún hefur unnið við margvísleg verkefni. Haldið tónleika, unnið við upptökur á hljómplötu sinni í fjórum hlutum. “Winter Lullabies” hefur verið samstarf við Sigfús Jónsson úr Hljómbræður Stúdíó ehf og hlaut styrk frá Menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Föstudagskvöldið 18. júní er loksins komið að tónleikum hins unga hæfileikaríka Birkis Blæs. Tónleikarnir  Birkir Blær í Black Box fara fram í svarta kassanum í Hamraborg. Birkir Blær mun syngja frumsamið efni af nýútgefinni plötu ásamt óútgefnu efni og vel völdum ábreiðum. Birkir er vanur að koma fram einn með græjurnar sínar, en í þetta sinn hefur hann með sér einvala lið hljóðfæraleikara. 

Tónleikar Diana Sus og Birkis Blæs eru hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.   

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link