Til baka
20 May 2025

Þrjár Grímutilnefningar norður

Tilkynnt var um tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna í Tjarnarbíó í gær og hlaut Leikfélag Akureyrar þrjár tilnefningar. Fjölskyldusýningin Jóla Lóla var tilnefnd sem barnasýning ársins en sú sýning var samin að öllu leyti fyrir norðan og verður sýnd á ný um næstu jól. Birta Sólveig Söring var tilnefnd sem leikkona ársins fyrir túlkun sína á Auði í söngleiknum Litla Hryllingsbúðin sem Leikfélagið setti upp síðasta haust og bætti svo við aukasýningum um páskana vegna mikillar eftirspurnar. Síðan var Unn­ur Elísa­bet Gunn­ars­dótt­ir tilnefnd fyrir dans og sviðshreyfingar ársins fyrir Litlu hryll­ings­búðina.

Auk þess var Þórey Birgisdóttir  tilnefnd sem leikkona ársin fyrir Ífigeníu í Ásbrú en sú sýning verður gestasýning Leikfélags Akureyrar á næsta ári og þess má geta að Þórey lék stórt hlutverk í Litlu Hryllingsbúðinni . Síðan var Ævar Þór Benediktsson tilnefndur sem leikari ársins fyrir Kafteinn Frábær en sú sýning mun einnig vera gestasýning hjá Leikfélagi Akureyrar á næsta leikári. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link