Það vantaði ekki áhugann þegar Leikfélag Akureyrar auglýsti eftir krökkum til að leika í Skilaboðaskjóðunni sem frumsýnd verður í febrúar 2027. Um 120 krakkar mættu í prufur, tilbúin að syngja, leika og dansa.
Það var erfitt verkefni sem tók við hjá listrænum stjórnendum sýningarinnar þegar velja þurfti úr þessu hæfileikaríka hópi. Nú hafa tíu krakkar fengið þau skemmtilegu skilaboð að þau hafi fengið hlutverk í sýningunni.
Hópinn skipa þau: Benóný Þór Jónasson, Ólöf Birna Kristjánsdóttir, Agnes Emma Guanci, Ester Jóna Bryndísardóttir, Heiðbrá Hekla Sigurgeirsdóttir, Rakel Heiða Björnsdóttir, Margrét Lára Rúnarsdóttir, María Rut Norðfjörð, Brynja Hlín Björgvinsdóttir og Ólafur Árni Haraldsson.
Þessi fjölbreytti hópur á nú fyrir höndum skemmtilegt og krefjandi æfingaferli er þau hefja sína sameiginlegu ferð inn í ævintýraheim Skilaboðaskjóðunnar þar sem þau munu stíga á svið með atvinnufólki og verða hluti af einni stærstu fjölskyldusýningu vetrarins.
Æfingar hefjast í nóvember undir stjórn Bergs Þórs Ingólfssonar, leikhússtjóra og miðað við þá gleði sem lék um Borgarasal Samkomuhússins er krakkarnir hittust í fyrsta sinn má ætla að tilhlökkunin sé þegar farin að gera vart við sig.


