Til baka
4 Apr 2024

Tónleikar með lögum tíu ungskálda í Hofi á sunnudaginn

Tónleikar Upptaktsins verða haldnir í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 7. apríl kl. 17.

Tíu unghöfundar, á aldrinum 10-16 ára, hafa unnið með listafólki að útsetningu laga sinna. Afraksturinn má sjá og heyra á tónleikunum. Verkin eru útsett af fagfólki og verða flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum á stóra sviðinu í Hamraborg.

Ungtónskáldin og verk þeirra :

Anna Lovísa Arnarsdóttir – Eyrun mín sjá liti

Eiður Reykjalín Hjelm – Frühlig im Wald (vor í skóginum)

Hákon Geir Snorrason – Svigrúm

Heimir Bjarni Steinþórsson – Metal Dandelion

Jóhann Valur Björnsson – Unfathomable og Blossom

Jóhanna Kristín Júliusdóttir – Fjölskyldur

Svanborg Alma Ívarsdóttir – Draumur túnfisksins

Þórhallur Darri – Show me your heart

Þórhildur Eva Helgadóttir – Froskadansinn

Tobías Þórarinn Matharel – Trompetlag

Hljómsveitina skipa:

Emil Þorri Emilsson – slagverk og trommur

Eyþór Ingi Jónsson – píanó og hljómborð

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir – selló

Stefán Ingólfsson – bassi

Vilhjálmur Ingi Sigurðsson – trompet

Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Kristján Edelstein og Greta Salóme.

Tónlistarstjóri: Greta Salóme.

Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu og er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Upptakturinn er þátttakandi í Barnamenningarhátiðinni á Akureyri. Líkt og með aðra viðburði Barnamenningar er frítt inn á tónleikana.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link