Til baka
20 Feb 2020

Tröll og Djákninn á Myrká

Það er skemmtileg helgi fram undan hjá Menningarfélagi Akureyrar! 

Í Hofi halda áfram sýningar á Tröll, leikverki Leikfélags Verkmenntaskólans á Akureyri. Leikstjóri er Kolbrún Lilja Guðnadóttir en innblástur verksins er fenginn frá frægu myndinni Trolls sem gefin var út árið 2016. Miðasala hefur fengið mjög vel svo þau sem ætla sér að sjá Tröll er bent á að tryggja sér miða sem fyrst. Hér er miðasala. 

Í Samkomuhúsinu mun Djákninn á Myrká snúa aftur en sýningin, Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð sló rækilega í gegn á síðasta leikári. Vegna mikilla vinsælda snýr þessi sprenghlægilega og farsakennda meðhöndlun á þekktustu draugasögu Íslandssögunnar aftur og sem áður eru það Jóhann Axel Ingólfsson og Birna Pétursdóttir sem draga fram hverja persónuna á fætur annarri, lesa á milli línanna og skálda í eyðurnar. Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð er samstarf Leikhópsins Miðnætti við Leikfélag Akureyrar. Sýningar eru aðeins þessa helgi.Miðasala er hér.  

Hér er leikskráin fyrir Djáknann á Myrká.

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link