Til baka
21 Oct 2024

Tvö ný íslensk tónverk frumflutt í Hofi

Tónlistarveisla í Hofi 24. nóvember.

Greta Salóme, Daniel Bjarnason, Snorri Sigfús Birgisson, Ravel, Shostakovich og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Þann 24. nóvember verður stórviðburður í Hofi þegar tvö ný íslensk sinfónísk tónverk verða frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Daníel Bjarnason sem fékk þrenn verðlaun á Íslensku Tónlistarverðlaununum og var valinn maður ársins í tónlist 2023 mun stjórna frumflutningi á verki sem hann samdi sjálfur til minningar um Jóhann Jóhannsson, frumkvöðul í íslenskri kvikmyndatónlist. Einnig verður frumfluttur nýr konsert fyrir hljómsveit eftir hið ástsæla tónskáld Snorra Sigfús Birgisson.

Önnur verk verða Boléro eftir Ravel og fiðlukonsert nr. 1 eftir Shostakovich þar sem einleikari á fiðlu verður engin önnur en Greta Salóme

Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason

Miðasala á mak.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link