Undanfarna daga hafa glaðbeitt og forvitin sjö ára börn úr grunnskólum Akureyrar fyllt króka og kima Samkomuhússins. Tilefnið er leikverkið Leyndardómar leikhússins. Leikhúsrotturnar tvær, Rómeó og Júlía, hafa tekið vel á móti þessum föngulegu börnum, leitt þau um húsið og kynnt þeim leikhúsið og galdra þess. Ferðin í gegnum leikhúsið bauð upp á eitthvað skemmtilegt og forvitnilegt við hvert fótmál. Hrekkjóttur húsdraugur stríddi hópnum og Rómeó og Júlía sýndu honum virðingu en snéru hann af sér og héldu áfram ferð sinni í leit að viðeigandi búningum og sminki til þess að geta gert litla leiksýningu, þar sem börnin eru þátttakendur úti í sal. Undrun og gleði skein af hverju andliti og öll voru þau til í að hjálpa leikhúsrottunum, með miklum leikrænum tilþrifum.
Leyndardómar leikhússins er samvinnuverkefni Leikfélags Akureyrar og Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Leikverkið er í formi leiðsagnar um Samkomuhúsið, þar sem kynning á þeirri vinnu sem fram fer í leikhúsinu er í forgrunni. Verkið er gert fyrir nemendur í 2. bekk grunnskóla og vonir standa til þess að þeim árgangi á Akureyri og nærsveitum bjóðist árlega hér eftir að koma í heimsókn í leikhúsið.
Leikstjóri og handritshöfundur er Jenný Lára Arnórsdóttir og það eru þau Níels Thibaud Girerd og Sólveig Guðmundsdóttir sem glæða gestgjafana og leikhúsrotturnar lífi. Tæknihönnuður er Ágúst Örn Pálsson, búningahönnun er í höndum Bjargar Mörtu Gunnarsdóttur og sýningarstjórar eru þær Þórunn Geirsdóttir og Þórgunnur Oddsdóttir.
Í sömu viku og við fögnum degi alþjóðlegs barnaleikhúss, sem er 20. mars, hefur yngsta kynslóðin sannarlega þanið út viðinn í húsinu með gleði og eftirvæntingu um leið og hún hefur upplifað og kynnst göldrum leikhússins.
Við hlökkum til að taka á móti fleiri börnum á nýju ári.


