Til baka
11 Nov 2010

Uppáhaldslög Hymnodiu

Hver kórfélagi valdi sitt uppáhaldslag frá eldri tónleikaefnsskrám kórsins. Kórinn var stofnaður árið 2003 og hefur haldið tugi tónleika með afar ólíkum efnisskrám. Það er því hægt að lofa fjölbreyttri efnisskrá á fimmtudaginn. M.a. verður flutt tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur, Jón Hlöðver Áskelsson, Heinrich Isaac, T.L da Victoria, Edvard Grieg, Eric Whitacre og Thomas Jennefeldt. Arna Valsdóttir sýnir videoverk á tónleikunum. Aðgangseyrir er 1.500 kr. og er aðgangur ókeypis fyrir 16 ára og yngri.

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link