Til baka
4 Nov 2026

Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi.  

María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám við
Ríkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu sína við Ísland.

Um verkin segir María “Á sýningunni Upplausn og blómgun leitast ég við að
fanga það sem liggur á mörkum hins sýnilega og hins dulda, þar sem lífræn
form náttúrunnar breytast í innra hugarástand. Form blómsins og hvernig það
breytist í tímans rás fylgir þeirri tilfinningu sem ég ber í hjartanu. Með því að
vinna með olíu og terpentínu á striga leyfi ég efninu að ráða för, ég leyfi
litnum að leysast upp, flæða, renna og leita eigin leiða, hömlur hverfa og eftir
standa hughrif. Formin fæðast hægt og rólega úr mörgum lögum af lit, áferð
og hreyfingu. Verk mín endurspegla þannig stöðugt samtal á milli þess sem
var og nýs veruleika sem hefur í för með sér upplausn en um leið nýja sýn, ný
tækifæri og blómgun.”

Verkin sem eru aðallega unnin með olíu á striga, vinnur hún með áhrif frá
ítalska endurreisnartímabilinu og hráan kraft íslenskrar náttúru og birtu.

María hefur haldið einkasýningar sem og tekið þátt í samsýningum, bæði á Íslandi
og á Ítalíu. Verk hennar á þessari sýningu endurspegla þetta stöðuga samtal
á milli tveggja landa, þar sem hún vinnur með klassísk form, birtu og hringrás
náttúrunnar á kraftmikinn og ljóðrænan hátt.

Sýningin stendur til 17. janúar 2027

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

13 Oct 2026
Á heimaslóðum í Hofi 

„Ég er gríðarlega spenntur og er það heiður að fá að koma að þessum viðburði, þá sérstaklega á heimaslóðum“ segir söngvarinn Gunnar Björn Jónsson sem stígur á svið í Hofi á opnunarviðburði nýstofnaðar Óperu næstkomandi sunnudag. Gunnar er einn fjögurra söngvara sem hafa verið ráðnir til Óperunnar. Söngurinn hefur fylgt honum frá unga aldri og