Til baka
24 May 2024

Upptakturinn kominn á UngRÚV

Nú er hægt að horfa á Upptaktinn á Akureyri 2024 í sjónvarpinu því stök atriði frá tónleikunum eru sýnileg á UngRÚV.

Tónleikarnir fóru fram í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 7. apríl. Tíu unghöfundar, á aldrinum 10-16 ára, unnu með listafólki að útsetningu laga sinna. Verkin voru flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum á stóra sviðinu í Hamraborg. Um útsetningu verkanna fyrir hljómsveit sáu Kristján Edelstein og Greta Salóme, sem einnig var tónlistarstjóri.

Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu og er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra. 

Lög krakkanna eru einnig að finna á Youtube. 

 

Ungtónskáldin og verk þeirra :

Anna Lovísa Arnarsdóttir – Eyrun mín sjá litiEiður Reykjalín Hjelm – Frühlig im Wald (vor í skóginum)Hákon Geir Snorrason – SvigrúmHeimir Bjarni Steinþórsson – Metal DandelionJóhann Valur Björnsson – Unfathomable og BlossomJóhanna Kristín Júliusdóttir – FjölskyldurSvanborg Alma Ívarsdóttir – Draumur túnfisksinsÞórhallur Darri – Show me your heartÞórhildur Eva Helgadóttir – FroskadansinnTobías Þórarinn Matharel – Trompetlag

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link