Til baka
1 Apr 2011

Útsvar í Hofi

Annars eru allir velkomnir í Hof á föstudagskvöldið til þess að taka þátt í þessum stórskemmtilega viðburði. Þættinum verður einnig varpað á risatjaldi í minni sal Hofs þannig að það má gera ráð fyrir mikilli stemningu í húsinu. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.

Lið Akureyrar skipa þau Birgir Guðmundsson, Hilda Jana Gísladóttir og Hjálmar Brynjólfsson. Í liði Norðurþings eru Kristveig Sigurðardóttir, Stefán Þórsson og Þorgeir Tryggvason.

Umsjónarmenn þáttarins eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundur og dómari: Ólafur B. Guðnason. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.

Af vef RÚV: Við hófum veturinn hófst með með 24 liðum frá jafnmörgum sveitarfélögum og nú standa eftir tvö. Spennan hefur verið geysimikil í vetur og er enginn vafi á að hún verður það einnig í  lokaþættinum. Bæði lið mæta sjálfsagt einbeitt til leiks í von um að taka Ómarsbjölluna, verðlaunagrip Útsvars, með sér heim í hérað. Verður það lið Norðurþings sem gerir það eða lið Akureyrar? Það kemur í ljós næstkomandi föstudagskvöld.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link