Til baka
11 Sep 2025

VÆB bræður og Maggi Eiríks um helgina

Þann 25. ágúst varð einn ástsælasti laga og textahöfundur íslands áttræður og afþví tilefni mun fjöldi frábærra listamanna heiðra hann og hans verk í Hofi þann 14. september. Magnús Eiríksson hefur talað til þjóðarinnar í gegnum lög sín og texta í hartnær 60 ár og líklegt að nánast hver einasti syngjandi Íslendingur geti raulað með hans vinsælustu lögum. Hvort sem það er Magga í bragga, Draumaprinsinn, Húsið við Hudson bay, ómissandi fólk eða eitthvert annað þeirra fjöldamörgu laga sem hann hefur samið fyrir Brunaliðið, Mannakorn, sjálfan sig og fjölda annarra listamanna.

Tónleikarnir hefjast kl. 16 og munu Ellen Kristjáns, KK, Múgison, Pálmi Gunnars og Ragga Gísla flytja og túlka lög hans og texta á þessum stórviðburði.

Daginn áður, eða laugardaginn 13. september verður annað tempó á sviði Hofs þegar VÆB bræður verða með fjölskyldutónleika þar sem þeir munu flytja júróvisjón slagarana sína ásamt öðrum ofurhressandi lögum á sinn einstaka hátt. Búast má við háu orkustigi og frábæru fjöri.

Það er því eitthvað fyrir allan aldur í Hofi um helgina, hægt er að nálgast miða á viðburðina á Menningarfelag.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link