Það voru spennt ungtónskáld og gestir þeirra sem settust með fiðrildi í maganum inn í Hamraborg í Hofi í gær, sunnudaginn 19. apríl. Þar fóru fram afar vel velheppnaðir tónleikar Upptaktsins, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna. Sjö verk eftir börn á aldrinum 10, 11 og 12 ára voru þar frumflutt við mikinn fögnuð gesta. Popplög, nýklassík, kletzmer og nútímaverk barnanna fengu að njóta sín í flutningi atvinnuhljóðfæraleikara í útsetningu Gretu Salóme.
Unghöfundarnir og verk þeirra :
Freyja Rán Kristínardóttir – Snjóstormur
Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir – Draumar
Hákon Geir Snorrason – Saman
Ólöf Birna Kristjánsdóttir
Ólöf Braga Ívarsdóttir – Tímavélin
Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske
Þorvaldur Adam Ásgeirsson – Blíða
Hljómsveit Upptaktsins:
Emil Þorri Emilsson – slagverk
Eydís S. Úlfarsdóttir – víóla
Eyþór Ingi Jónsson – flygill
Greta Salóme – fiðla og söngur
Kristján Edelstein – gítar
Stefán Ingólfsson – bassi
Ágúst Þór Brynjarsson – söngur og gítar
Upptakturinn á Akureyri er fyrir börn og ungmenni í 5. – 10. bekk á Norðurlandi eystra og er samstarfsverkefni Menningarfélag Akureyrar og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE.


