Til baka
11 May 2021

Velheppnaðir tónleikar Upptaktsins

Velheppnaðir tónleikar Upptaktsins, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna, fóru fram í Menningarhúsinu Hofi á sunnudaginn. Þar voru tíu verk ungskáldanna flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum. Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri Menningarhússins Hofs segir tónleikana hafa tekist afar vel.

„Ég held að mér sé óhætt að segja að ekki hafi verið þurrt auga í salnum eftir flutning verkanna tíu. Ég fann sterkt hversu stolt ungu skáldin voru af verkum sínum, svo ekki sé talað um áheyrendur enda ekki á hverjum degi sem atvinnuhljóðfæraleikarar flytja verk eftir svo ung tónskáld. Við erum ríkt samfélag með svo hæfileikarík og skapandi ungmenni í tónlist,“ segir Kristín Sóley.

Um útsetningu verkanna fyrir hljómsveit sá Kristján Edelstein og Greta Salóme en Greta er einnig tónlistarstjóri Upptaktsins.

Unghöfundarnir og verk þeirra :

Aðalheiður Jóna Kolbeins Liljudóttir – Tröll og grjót

Daníel Hrafn Ingvarsson- Who are you tryna fool

Gísli Freyr Sigurðsson- Wicked WonderLand

Heimir Sigurpáll Árnason – Kveðja til þín

Jóhann Valur Björnsson – Uncertain River

Lea Dalstein Ingimarsdóttir – Fuglinn

Mahaut Ingiríður Matharel – XLIX

Óðinn Atlason- Desember

Reginn Ólafur Egilsson- Geimveran

Þórný Sara Arnarsdóttir og Amanda Eir Steinþórsdóttir – Loginn

Upptakturinn er fyrir börn og ungmenni í 5. – 10. bekk og er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link