Til baka
26 Jun 2025

VERÐANDI listsjóður – Styrkir hafa verið veittir!

Veittir hafa verið styrkir úr listsjóðnum VERÐANDI fyrir árið 2025-2026. Það voru 21 umsókn sem bárust sjóðnum og 9 verkefni sem hlutu brautargengi. Við óskum þeim innilega til hamingju!

Eik HaraldsdóttirKvöldroði – Ný djasstónlist eftir Eik, 19. mars 2026

Eyþór Alexander HallssonFönkkvöld með Big Bandi Eyþórs, 5. september 2025

Guðmundur Tawan, sumarlistamaður AkureyrarDýrð i Fagraskógi – tískusýning, 16. ágúst 2025

Helga Margrét ClarkeRaddir kvenna og kvára, 19. júní 2026

Jónína Björt GunnarsdóttirKrakkagleði í Hofi, 15. febrúar og 15. mars 2026

Matiss Leo MecklRythmasögur, 7. ágúst 2025

Tinna Björg TraustadóttirÓ MÆ GOD! Ég er þrítug +1, 17. október 2025

Yuliana PalaciosMalinche, 12. júní 2026

Styrkþegarnir, sem margir hverjir eru ungir að árum, bjóða gestum uppá spennandi, fjölbreytta og nýstárlega viðburði fyrir öll skynfærin á tímabilinu 8. ágúst 2025 til júníloka 2025. Frumsamið efni, glænýjar útsetningar í bland við kunnuglegt efni fyrir alla aldurshópa. Hér má nefna fönktónlist með Big Bandi, slagverksdúó, djass, tískusýningu, samtímadansverk, fróðleik og tónlist kvenna og kvára ásamt popptónlist og forvitnilegra viðburða fyrir börn.

„Það var frábært að sjá fjölbreytni umsóknanna sem bárust í ár, sjá metnað listafólksins og ungu grasrótarinnar sem vill nýta sér aðstöðuna hér í Menningarhúsinu Hofi fyrir þeirra flottu og krefjandi viðburði. Starfsfólk Menninghússins Hofs hlakkar til að taka á móti þeim í hús en fyrstu tveir viðburðirnir verða núna í ágúst næstkomandi.“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri VERÐANDI listsjóðs.

Megintilgangur Verðandi listsjóðs er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof sem vettvang fyrir listsköpun sína. Listsjóðurinn á að auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að nýta sér þá fyrirmyndaraðstöðu sem húsakynni Menningarfélags Akureyrar búa yfir, auk þess að stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum og nýta þá möguleika sem þar eru fyrir fjölbreytta viðburði. Akureyrarbær, Menningarfélagið Hof og Menningarfélag Akureyrar standa á bak við Verðandi listsjóð.

Allir viðburðirnir verða sýnilegir á mak.is. Þar má finna nánari upplýsingar og hægt að tryggja sér miða á viðburðina framundan.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link