Til baka
13 Mar 2025

Verk samið fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er tónverk ársins.

Konsert nr. 2 fyr­ir hljóm­sveit var kosið tónverk ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í gærkveldi. Verkið er samið af Snorra Sig­fúsi Birg­is­syni fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á árunum 2020 – 2024. Verkið var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í september 2024 undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Snorri sjálfur var viðstaddur frumfutninginn og er það mikill heiður fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að hafa frumflutt verkið, sérstaklega í ljósi þeirrar viðurkenningar sem það fær.

Rætur verksins liggja víða og hafði Snorri meðal annars til hliðsjónar stemmu sem Þorbjörn Kristinsson (1918–2001) kvað en Þorbjörn var um árabil barnaskólakennari við Glerárskóla. Stemmuna kvað Þorbjörn við eftirfarandi vísu eftir bróður sinn,

Hjörleif Kristinsson (1918–1992):Dags er glæta þrotin þáþokan vætir kinnar.Skjóna fætur skripla áskuggum næturinnar.Tónlistarsjóður og Launasjóður tónskálda veittu styrki til verksins.

 

Snorri Sigfús Birgisson er fæddur 29. apríl 1954. Hann stundaði píanónám fyrst hjá

Gunnari Sigurgeirssyni en innritaðist síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar lærði hann á píanó hjáHermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni en lagði einnig stund á tónsmíðar hjáÞorkeli Sigurbjörnssyni. Hann lauk einleikaraprófi 1974. 1974-1975 stundaði hann framhaldsnám ípíanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum, 1975-76 tónsmíðanám í Osló hjá Finn Mortensen (enn fremur nám í raftónlist hjá Lasse Thoresen og “sonology” hjá Thoresen og Olav Anton Thommessen) og 1976-1978 lærði hann tónsmíðar hjá Ton de Leeuw í Amsterdam.

Snorri hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hannkom heim frá námi (1980). Hann hefur samið einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist og sinfónísk verk. Hann er félagi í CAPUT hópnum.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link