Til baka
9 Oct 2019

Viðburðarík helgi fram undan

Helgin verður viðburðarík hjá Menningarfélagi Akureyrar. Á föstudagskvöldið verður gestasýning Borgarleikhússins; Allt sem er frábært frumsýnd hér fyrir norðan. Sýningin var tilnefnd til þriggja Grímuverðlauna árið 2019; sýning ársins, Ólafur Egill Egilsson sem leikstjóri ársins og Valur Freyr Einarsson sem leikari ársins í aðalhlutverki. Sýningar eru föstudags- og laugardagskvöld í Menningarhúsinu Hofi og er miðasala í fullum gangi á mak.is. 

Að sama skapi verður mikið líf og fjör alla helgina í Samkomuhúsinu. Á sunnudagsmorgun fer þar fram Barnamorgun þegar persónur úr nýja fjölskylduverkinu Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist mæta og spjalla við krakkana. Lesnar verða sögur, sungnri söngvar og sprellað. Öll börn 6-13 ára eru velkomin í Samkomuhúsið á meðan húsrúm leyfir. NORÐURORKA er styrktaraðili Barnamorgna Menningarfélags Akureyrar. Ekkert þátttökugjald er á Barnamorgnum. 

Tvær sýningar af Galdragáttinni eru á sunnudeginum, klukkan 13 og 16. Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur og fékk til að mynda fjórar stjörnur í gagnrýni sem birtist í Morgunblaðinu á dögunum. Þar sem sýningatími er takmarkaður er áhugasömum bent á að hafa hraðar hendur og tryggja sér miða áður en það verður of seint. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link