Til baka
1 Jul 2026

Viðburðir næsta sýningarárs Menningarfélagsins komnir í sölu

Á næsta ári verða 120 ár liðin frá því að fyrsta sýningin var haldin í Samkomuhúsinu á Akureyri og að því tilefni blæs Leikfélag Akureyrar til afmælissýningar sem heiðra mun minningar um marga af þeim menningaviðburðum sem fyllt hafa veggi  Samkomuhússins í leik, tali og tónum síðustu tólf áratugi. 

Sú sýning er aðeins brot af fjölbreyttu úrvali viðburða sem Menningarfélag Akureyrar ætlar að setja á svið frá og með næsta október. 

Friðrik Dór og SinfoniaNord verða með tvenna tónleika, Óperan opnar í Hofi, nýtt og ferskt leikverk um frumskóg fasteignamarkaðarins og margt fleira spennandi mun gleðja og göfga huga og hjörtu áhorfenda á komandi vetri. 

Einnig mun Skilaboðaskjóða heimamannsins Þorvaldar Þorsteins vera sett á fjalir Samkomuhússins, fjölskyldufólki til mikillar gleði. 

Hægt er að kynna sér spennandi úrval viðburða á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar, www.mak.is.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link