Til baka
1 Mar 2021

Viltu slást í hópinn?

Menningarfélag Akureyrar leitar að starfsfólki til að taka að sér vaktir í tengslum við viðburði í Hofi og í Samkomuhúsinu. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa reynslu af þjónustustörfum og afgreiðslu veitinga. Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, hafi góða hæfni í mannlegum samskiptum, sé lausnamiðaður og geti unnið sjálfstætt. Um er að ræða tilfallandi vaktavinnu sem tekur mið af viðburðum hverju sinni.

Umsóknir, þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið, ásamt ferilskrá skulu sendar á umsoknir@mak.is fyrir 15. mars n.k.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link